Gyða Ásmundsdóttir: August 2008 Archives
Það er yndislegt að eiga helgarfrí, maður kann fyrst virkilega að njóta þessa að vera í fríi þegar maður hefur eytt of miklum tíma í vinnunni! Svona vinnutarnir eru svo sem allt í lagi ef þær eru stuttar.
Búið að vera mikið um að vera bæði í vinnunni sem og einkalífinu. Tíu ára brúðkaupsafmæli á föstudaginn, ótrúlegt alveg að það séu komin tíu ár síðan við Matti giftum okkur!! Mér finnst stutt síðan en samt svo langt líka. Fyrir tíu árum síðan voru Kolla og Inga María ekki einu sinni til, get ekki ímyndað mér lífið án þeirra svo það er skrítin tilhugsun. Þeim finnst líka doldið fúlt að við skildum hafa gift okkur án þeirra og þar með auðvitað skilið þær útundan, hvernig er hægt að túlka málið öðru vísi hmmm!
Svo var fyrsti dagurinn hennar Áróru í MR. Þessar breytingar eru auðvitað rosalega spennandi en jafnframt erfiðar. Það er alltaf erfitt að koma nýr inn í hóp og þekkja engan. Hún segist ekki hafa talað við neinn en hefur samt frá þó nokkrum samtölum að segja, mótsögn hmm greinilega ekki þegar maður er fullur af unglingaveiki þá er lífið ein stór mótsögn :-) EN við vonum bara innilega að hún eignist góða vini í MR.
Menningarnóttin í gær var rosalega fín þrátt fyrir rigningu og rok. Við fórum í bæin um 11 leitið með strætó sem stelpunum finnst alltaf fjör. Röltum svo um bæinn og sáum ýmislegt skemmtilegt. Miðbæjarskólinn stóð samt upp úr hjá stelpunum. Einfaldir hlutir í raun en einfaldleikinn er oft bestur þegar hann er vel gerður. Þar skoðuðum við gamla skólastofu og leikstofu, settumst í söguhornið þar sem börnunum voru sagðar sögur af mjög góðum sögumanni. Sögustundin þarna var það sem Inga María valdi að hefði staðið upp úr eftir daginn. Eftir tvær sögur röltum við áfram um húsið og fengum okkur mjólk og súkkulaði köku og bjuggum til origani með hjálp starfsmanns. Sá starfsmaður kemur víst reglulega í Frissa fríska og gerir origani með börnunum þar og þekktu stelpurnar hann því og það var gaman að sjá að hann þekkti þær líka þó hann vinni við að fara á milli frístundaheimila að kenna origani og hitti því örugglega mörg börn.
Eftir miðbæjarskólan fórum við á tónleika í fríkirkjunni sem voru mjög skemmtilegir og þaðan út að borða á La prima vera með foreldrum Matta, systkynum og fjölskyldu. Eftir Matin voru það tónlistin sem réði ríkjum sáum Hjálmana, Fræflana og Geirfuglana. Áróra gafst þó upp fljótlega eftir matin enda búin að vera hölt allan dagin vonandi er hún betri í fætinum í dag annars þurfum við að kíkja á slysó. Að lokum var það svo auðvitað flugeldasýningin sem stendur alltaf fyrir sínu. Fórum heim glöð en ánægð eftir góðan dag.
Vöknuðum svo eld snemma til að horfa á Ísland - Frakkland, fúlt að tapa leiknum með svona miklum mun en gaman að sjá strákana taka á móti silfrinu.