Gyða Ásmundsdóttir: April 2008 Archives
Þá er komin helgi aftur og ég kann enn að njóta þess að hafa eiga helgarfrí, virkilegur lúxus eftir vinnu undarfarna vikna. Hvað ætli þessi tilfinning endist lengi!
Ég fór á æfingatækið mitt tvisvar í þessari viku er ég ekki dugleg :-) Hef ekki getað hugsað mér að vakna fyrr en ég geri á morgnanna meðan vinnutörnin gekk yfir en nú hef ég ekki þá afsökun svo ég dreif mig á fætur hálf 7 þriðjudag og fimmtudag. Annars er sólin að vekja mig milli 6 og hálf sjö þessa dagana. En það er í lagi meðan það er ekki fyrr!
Annars man ég ekki eftir meiru sem gerðist í vikunni ætlaði að skrifa skýrslu um það hvað við hefðum gert en svo kemur ekkert upp í kollinn. Ahh jú fyrsta grill sumarsins var í gær. Hrikalega gott að fá grillaðar kartöflur, maiís og kjöt namm namm.

Ligg hér í sófanum með stelpunum að bíða eftir að Crazy frog myndmandið komi á youtupe. Kollu langar mikið að skoða þetta myndband sem vinir hennar segja að sé svo flott en þau geta ekki haft hljóð á tölvunum í skólanum. Það er sem sagt til fullt af Crazy frog myndböndum á you tupe að ég skildi hafa misst af þessu hingað til!!
Ég var nú að viðurkenna að mér finnst James Blunt myndbönin skemmtilegri sem ég var að horfa á rétt áðan og hann er á leið til íslands jibíí
Jæja þá er komin tími til að taka helgarfrí jibíí hef ekki átt slíkt síðan í janúar! En fór reyndar í páskafrí svo varla hægt að kvarta mikið eða hvað!
Vinnutörnin er að ljúka á reyndar fullt af verkefnum en get sem betur fer farið að minnka yfirvinnuna.
Við Kolla fórum í vörtumeðferð í dag ég var að mæta í síðasta sinn þ.e. sjálf mun örugglega mæta með Kollu. Vartan hennar Kollu stækkar bara og stækkar en læknirinn og sjúkraliðin reyna að fullvissa okkur um að svona sé þetta stundum og svo allt í einu bara virki þetta og vartan fari. Læknirinn vill allavegana reyna allt að 10 svona meðferðir þ.e. frystispreyjið og eitthvað eitur sem er borið á áður en hann fer að hugsa um næstu meðferð sem er víst að sprauta krabbameinslyfi í vörtuna! Hljómar ekki vel en meðferðin sem við erum í er ekki góð og þetta var sjötta meðferðin hennar Kollu í dag (sjöunda mín!). Kolla greiið kveinar og kveinar meðan hann frystir vörtuna hennar en það er samt mikið betra eftir að Matti fór að koma líka var ansi erfitt að hafa engan til að halda í hendina á (við vorum á sitthvorum bekknum/stólnum).