Gyða Ásmundsdóttir: January 2008 Archives

komin einkun

| | Comments (5)
Jæja einkunin mín er komin fyrir heilsuhagfræði I kúrsinn sem ég tók fyrir jól.  Ég fékk 8,5 fyrir kúrsinn sem ég er mjög sátt við og ekki verri er einkunin fyrir ritgerðina sem var 9 (gilti 30% af einkun).  Víí til hamingju ég :-)

Ég verð meira að segja doldið döpur yfir að hafa ekki getað haldið áfram í framhaldinu en maður gerir víst ekki allt í einu og í augnablikinu er ég að vinna fram eftir alla daga svo veit að ég myndi verða endanlega galin ef ég bætti námi ofan á það!

Vinna og útsölur

| | Comments (4)
Það er mikið að gera í vinnunni og ég er að vinna fram eftir alla daga.  Þökk sé ferðavél þá ætla ég ekki niður í vinnu um helgina heldur vinna hérna heima.  Mun örugglega þurfa að vinna allar helgar fljótlega svo eins gott að njóta þess að vinna bara heima!  Styttist í ársuppgjörið og í janúar er ég með tvö störf á bakinu, fjör hjá mér.  Farin að telja niður dagana þar til nýji fjármálaráðgjafinn byrjar :-)

Við Áróra fórum í smáralind áðan og kíktum í útsöluna hjá Jane N eitthvað man ekki nafnið á búðinni en allavegana fílar Áróra fötin þar.  Hún fékk að eyða 9 þús kr og fékk fyrir það 2 boli, eina hneppta peysu og eina prjónaða peysu.  Allt á minnst 50% afslætti svo það var flott.  Hún á þá að eiga nóg af efri pörtum í langan tíma en henni vantar aðrar buxur.  Buxurnar sem henni langar í voru bara til í stærð 8 og ekki einu sinni Áróra gat hneppt þeim að sér, hún reyndar komst í þær en var þröngt að hneppa þeim.  En sem sagt ef þið passið í stærð 8 þá var nóg til af þeim :-)

Annars keypti ég mér bol og blússu í Debenhams sem kostuðu samtals 2 þús svo peningnum var ekki alveg jafn skipt á okkur mæðgur í þessari verslunarferð!

jæja ég var víst búin að lofa að sjá um kvöldmatinn og klukkan orðin hálf sjö og ekkert til að elda!  Best að drífa sig út í búð.

Hringja bjöllu

| | Comments (2)
Inga María fékk að hringja bjöllunni í fimleikunum á mánudaginn var voða ánægð með sjálfan sig, eðlilega.  Sem sagt þegar einstaklingi tekst eitthvað vel í fyrsta sinn þá segir þjálfarinn að hann megi hringja bjöllunni.  Þá stoppar allur salurinn og klappar og svo halda allir áfram að æfa. Mér fannst þetta ferlega skondið fyrst þegar ég sá þetta.  Fullur risa stór salur af krökkum að æfa, bjallan hringir allir stoppa og klappa og halda svo áfram án þess í raun að vita né sjá fyrir hverju þeir eru að klappa :-)  En það er örugglega rosa gaman að fá að stoppa alla og fá klappið :-)

Það er nóg að gera í vinnunni, bara gaman að því. 

Það snjóar og snjóar en micran mín komst samt út úr bílastæðinu vonandi kemst hún aftur út á morgun! 

Kaffi

| | Comments (4)
Hvernig væru mánudagar án kaffis??  Ég er komin með þriðja kaffibollan í hendurnar og klukkan orðin 10 svo vonandi fer heilinn bráðum að hoppa í gang!

Ef ekki væri til kaffi þá þyrfti ég örugglega að fara fyrr að sofa á sunnudagskvöldum!  Þið sjáið strax að það gengur ekki usss nei kaffi er því dásamleg uppgötvun :-)
Diddi var svo elskulegur að skipta um rafgeymir í bílnum mínum svo núna á ég loksins aftur bíl sem virkar.  Ég gat bara farið í vinnuna á undan liðinu að vísu sýndi ég Kollu fyrst rækilega á hvað stóri vísirinn bendir þegar klukkan er 10 mín yfir 8 og hún bar því ábyrgð á því að reka pabba sinn frá morgunverðaborðinu (sem sagt frá ferðavélinni og blöðunum) svo hann myndi keyra þær í skólan á réttum tíma!  Held að þetta plan okkar Kollu hafi bara virkað vel.  Það verður gott þegar sólin fer að koma upp fyrr og þær geta farið að labba í skólan aftur en ég vil ekki að þær labbi í þessu myrkri sem er núna.

Ég sótti svo bara stelpurnar og skutlaði þeim í mat til mömmu og pabba sem pössuðu þær meðan við fórum út að borða með vantrúarfélögum.  Það var gaman eins og venjulega enda erum við svo skemmtileg :-)  Komum svo bara heim rétt eftir miðnættið sem var bara passlegt finnst mér.
Síðustu dagar hafa ekki verið neitt rosalega skemmtilegir.  Það er ekki gaman að upplifa innbrot en eiginlega finnst mér áframhaldandi brot einstaklinganna verri en innbrotið sjálft og sérstaklega þegar allir hlutar púslast saman.  Við lærum sífelt meira um þetta fólk og skipulag innbrotsins.

Að vísu hefur verið mjög gaman að byrja aftur að vinna upp á Eiríksgötu en doldið erfitt líka að vera ennþá með gamla starfið með sér og vera teygður í allar áttir.
Jæja þá er þessi afmælisveisla búin og hálft ár í þá næstu á þessu heimili ahhh hvað það er notaleg tilhugsun :-)

Takk fyrir öll komentin voða gaman að fá koment á bloggið mitt!

Bekkurinn hennar Kollu og vinir komu klukkan 1 í dag og 23 börnum var boðið.  Við vorum nervus yfir að taka við hópnum bæði er hann ansi stór og svo voru þetta doldlir villingar í fyrra!!  Kolla vildi samt bjóða öllum svo það gerðum við enda hennar afmæli.  Afmælið gekk bara vel.  Það voru náttúrulega voðalega læti en samt ekkert mikið vesen í þeim.  Það reyndar voru "bara" ca 15 krakkar við borðið þegar við höfðum pizzuna og kökuna en einn krakki var farinn (var að fara í leikhús svo kíkti bara stutt) og tveir komu í lok afmælis.  Held að það hafi bæði munað miklu um að fjöldin var minni en í fyrra og svo hafa þau auðvitað þroskast heilmikið.

Klukkan 3 mættu svo ættingjarnir og vinirnir fóru.  Þrjár fjölskyldur afboðuðu sig svo það var nóg af veitingum það er á hreinu :-)  Þannig að við auðvitað átum og átum og síðustu gestir fóru rúmlega 7 og þá átum við fjölskyldan doldið meira og stelpurnar fóru í rúmið og ég fékk mér svo aðeins meira (hey það voru ennþá kökur eftir!!!).

Jæja ég ætla að skríða upp í rúm og halda áfram að lesa Svartfugl eftir Gunnar Gunnarsson.

Fyrir átta árum

| | Comments (4)
Vil byrja á að vekja athygli á því að titillinn á þessari blogg færslu byrjar ekki á fyrsta/i eins og hinar tvær á undan :-Þ

En fyrir átta árum síðan voru hríðarnar alveg að fara að byrja og fæðingin hennar Kollu minnar þar með í augsýn.  Reyndar leið næstum því sólahringur þar til hún kom í heimin og hún á heiðurinn af að vera erfiðasta fæðingin mín!

En mig langar að deila með ykkur tölvupósti sem ég skrifaði janúar 2000 net mömmu hópnum mínum ca viku eftir að Kolla fæddist.  Reyndar er líka skemmtilegt að segja frá því að þessi net hópur enn í fullu gangi og ég hef núna verið að skrifast á við þessar stelpur í hátt í 9 ár eða síðan í maí 1999 þ.e. frá því að Kolla kom undir :-) 
>
>Hi
>My dh told you that we had a girl 1/6 and I was home from the hospital last
>Monday. Sorry I have not written to you sooner but I was with very low
Iron
>levels after the birth and have not had the energy to do much. Everyday is
>better than the day before and hopefully I be my self again soon.
>We have not made her name official yet. It is the custom in Iceland to
>baptise and tell people the name then but we are not going to baptise her.
>We will have a name ceremony hopefully soon since we have already started
to
>use her name when we are alone and have to be very careful with not saying
>it in front of other people.
>The birth was a lot more difficult than with my older daughter. With Arora
>I was in labour for 2 and 1/2 hour and pushed her out in 10 or 15 min.
>This time I started having some contraction 2 am but they were not to bad.
>To bad for me to sleep but not that bad that I would wake dh up. 6:45 my
>water broke and we were at the hospital 8 am. Mostly because I was scared
>of fast labour but not because the contraction were to strong. I was 2-3
>dilated when we came to the hospital. I have been seeing low risk
pregnancy
>center and started the labour there. (It is next to the high tech labour
>and delivery at the hospital even on the same floor :-) but the room's and
>staff is different and of course the philosophy.) At 2 pm I was dilated to
>4 (and not very happy about that!!) but we continued with our non drug
plan.
>At 5 pm I was only dilated to 5 and my midwife wanted to start giving my
>something to speed things up. At that time I asked for some painkiller.
At
>8 pm I was only dilated to 6 even though I had been having the medicine to
>speed things up (I don't know the name). I was very tired at that point
and
>my midwife told my we needed to get more doses of the medicine. She asked
>me at that point if I would consider epidural because the pain would get
>much worse. This would mean I would have to leave her and the low risk
>pregnancy center but she thought it was the best thing for me. I agreed
and
>she took me over to the labour and delivery and I had the epidural. It was
>very good to have the pain taken away and at 10 pm the midwife (a new one
>since I had to leave MY midwife) told me I could start pushing. I tried to
>push but I found it very difficult to know when to push probably because of
>the epidural. I was also exhausted from the labour and could not push very
>good. The midwife called for the doctor and he helped my deliver with
>___(ooo English, it is something you put on the babies head and pull her
>out). She was out at 10:49 and I was exhausted. She is very healthy girl
>but also wery big :-) She was 4480 gr and 55 cm. Which is 9,95 lb and
>21,65 inches. And that is probably one of the reason it was difficult to
>push her out.
>She broke her collar bone in the delivery but is recovering well.
>I had to be at the hospital for 4 days because of my low iron after the
>delivery.
>I hope I didn't scare any of you still waiting but I can tell you it is all
>worth it in the end.

Mér finnst ótrúlega gaman að lesa þetta yfir jafnvel þó þetta hafi verið mjög erfið fæðing (þ.e. miðað við hinar tvær veit vel að margar fæðingar eru verri) og það sem mér fannst eiginlega verst við fæðinguna var hvað ég var uppgefin og búin eftir hana og gat ekki notið þess að knúsa stelpuna mína.  Ólíkt hinum tveimur fæðingunum þar sem ég var mjög hress eftir fæðingarnar.

Hér er svo linkur á mánaðarmyndirnar hennar Kollu (smella á nafnið hennar) en Matti hefur sem sagt tekið saman eina mynd í mánuði og sett á eina síðu fyrir stelpurnar (ekki alveg nýjustu mánuðirnir samt, hint til Matta að fara að uppfæra)
Jæja þá er fyrsta vinnuvika ársins búinn.  Ferlega gott að hún sé búin ég er uppgefin þó ég hafi reyndar afkastað mest litlu!  Fer ótrúlega mikill tími í að koma sér fyrir á nýjum stað, setja upp tölvuna og fá rétta aðganga osfrv. 

Maður er svo hrikalega þreyttur eftir að snúa sólahringnum við, byrja í nýju starfi og ekki er þetta þjófnaðarmál sem ætlar að verða sagan endalausa að hjálpa til með það.  Þannig að eiginlega kem ég bara heim á kvöldin og langar að fara beint í rúmið en svo eftir að börnin eru komin í rúmið þá liggur maður hálf sofandi og horfir á sjónvarpið fram eftir í stað þess að sofna snemma!

Stelpurnar fóru í fyrsta skóladaginn á nýju ári í dag.  Eru búnar að vera að dunda sér með Gunnu ömmu síðustu tvo daga.  Reyndar er Áróra heima líka svo við höfum bara farið í vinnuna og hún passar þær fyrst og amma hefur svo sótt þær.  Þetta er dekurlíf stelpunum að vera svona hjá ömmu farið í bíó í gær t.d. meðan við þurfum að vakna eldsnemma (ok reyndar ekki fyrr en átta en ég vakna venjulega korter í sjö) og fara í vinnu.


Jæja þá er fyrsta vinnudegi í nýju starfi að ljúka.  Ekki get ég nú sagt að ég hafi afkastað mjög miklu í dag.  En ég hef setið fundi og reint mitt besta til að taka þátt!  Svo hef ég rölt á milli og kjaftað og kjaftað, ekki alveg venjulegt auðvitað að byrja að vinna þar sem maður þekkir alla.

Ég er voðalega þreytt bæði eftir að snúa sólahringnum við og eftir að meðtaka nýjar upplýsingar.
Þá er komið nýtt ár eina ferðina enn. 

Við áttum rosalega fínt kvöld hjá tengdaforeldrum mínum fengum mjög góðan mat og auðvitað góðan félagsskap.  Ég fékk að fá mér vínið og Matti keyrði, lúxus líf :-)  Hann reyndar kvartaði aðeins yfir því hvað ég sé léleg drykkjumanneskja svona þegar ég fæ tækifærið.
Dætur mínar eru nú ekki mikið fyrir flugelda og stóðu úti haldandi fyrir eyru og grenjuðu yfir að foreldrarnir hefðu ekki keypt hlífðargleraugu sem er svo sem alveg rétt hjá þeim en fórum ekkert að kaupa neina flugelda.  Æ ég hef nú aldrei verið neitt fyrir þessa flugelda heldur svo skil þær mjög vel. 

Matti var á leka vaktinni í nótt í rigningunni.  Þegar við komum heim var komið ansi mikið vatn við gluggan og stuttu seinna byrjaði glugginn að leka!  Matti dreif sig út að ausa vatninu úr og svo fylgdist hann með þessu fram eftir nóttu.  Veit satt að segja ekkert hvenær hann kom upp í en ég fór á fætur 10:30 og þá var allt í fínu lag með gluggan enda engin rigning.

Stelpurnar eru núna að spila keilu í wii eftir Tennis leik sem endaði í gráti því Ingu Maríu gekk svo illa og skammaði Kollu og sagði að það væri bannað að nota þrumuskot!!  Eins og þeim finnst wii skemtilegt þá enda leikirnir hjá Ingu Maríu voðalega oft með væli.  EN akkurat núna er fella eftir fellu og bara fagnaðaróp og give me five svo rosa fjör hér hjá okkur.

About this Archive

This page is a archive of recent entries written by Gyða Ásmundsdóttir in January 2008.

Gyða Ásmundsdóttir: December 2007 is the previous archive.

Gyða Ásmundsdóttir: February 2008 is the next archive.

Find recent content on the main index or look in the archives to find all content.

Gyða Ásmundsdóttir: Monthly Archives

Powered by Movable Type 4.01