Gyða Ásmundsdóttir: September 2008 Archives
Ég skrifa nú ekki oft á þetta blogg :-)
En langaði að punkta niður það helsta sem hefur verið í gangi hjá okkur síðastliðin mánuð. September mánuður fer alltaf í að allir séu að venjast skóla og frístundum aftur. Það er voðalega gott að koma fjölskyldunni aftur í rútínu en líka erfitt stundum að vera í öllu prógramminu. Prógram þessa vetrar er samt mikið auðveldara en í fyrra börnin eldast auðvitað með hverju árinu og taka meiri ábyrgð sjálf. En ég ætla að skipta niður í hverja persónu:
Ég: Auðvitað best að byrja á mér :-) Nóg að gera í vinnunni eins og alltaf en ég hef samt ekki verið að vinna yfirvinnu. Reyni bara að vinna í akkorði á daginn og verð að viðurkenna að ég fríka oft út um 2 að ég sé að fara eftir tvo tíma en þetta gengur allavegana.
Ég er búin að vera voðalega dugleg á tækinu mínu tvisvar í viku, hey engar hugsanir um að maður eigi að fara oftar tvisvar er mikið betra en ekkert. Ég skutla Ingu Maríu í fimleikana á mánudögum og föstudögum og kem til baka og skelli mér á tækið í 30 mín svo í sturtu og aftur út að sækja Ingu Maríu.
Matti: Æ þið getið bara lesið bloggið hans ef þið viljið fréttir af honum www.orvitinn.com
Áróra: Henni gengur bara vel í MR. Er kát og glöð og smá saman að eignast nýja vini. Hún fór í skólaferðalag síðustu helgi með helmingnum af 3. bekk og skemmti sér vel. Það er voðalega gott að sjá hvað hún er ánægð með skólan þó að þetta sé auðvitað skóli og þess vegna ógesslega leiðinlegur ef maður spyr hana hvernig sé í skólanum ;-)
Kolla: Hún er í tónlistaskóla tvisvar í viku og balett þrisvar í viku. Hún kemur sér sjálf í og úr tónlistaskólanum enda er hann rétt hjá skólanum og tekur svo strætó í balett en við sækjum hana svo úr ballettinum á leið heim úr vinnunni. Við vorum doldið stressuð yfir strætó ferðunum en hún rosalega spennt yfir þessari nýju ábyrgð. Við keyptum gsm síma handa henni í tilefni þessa og hún hringir alltaf í okkur þegar hún kemur upp í balettskóla svo við þurfum ekki að hafa áhyggjur af því að hún skili sér ekki. Hún er ánægð með þessar tómstundir þó hún hefði viljað koma fótboltanum fyrir í prógramminu líka! Hún er sérstaklega ánægð í balettinum á þriðjudögum þegar Katla kennir skapandi dans. Bæði finnst Kolla æðislegt að vera í skapandi dansi þar sem hún fær meira frjálsræði í dansinum og svo er hún alltaf ofboðslega ánægð með Kötlu sína. Hún er alveg sérstaklega ánægð með hana af þeim kennurum sem kenna henni dansinn.
Inga María: Hún er komin í annan bekk vá litla barnið mitt orðið svo stórt. Hún fékk nýjan kennara og á soldið erfitt með að venjast því. Hún er líka núna í opnu rými en sú breyting virðist ekki fara í hana en kannski kennir hún kennaranum bara um allar breytingar erfitt að segja stundum! Hún er í fimleikum hjá Gerplu áfram og er í vetur áfram með sama kennarann (Ásdís) og margar sömu stelpur og var í fyrra. Hún er nú voðalega feimin týpa svo það er voða gott að mæta í fyrsta tíma vetrarins og kallað Inga María hey Inga María er komin héðan og þaðan úr búningsherberginu. Bara gaman að hitta alla aftur þó hún fengi reyndar harðsperrur eftir fyrsta tíman og var dauðþreytt! En það var fljótt að venjast. Hún er tvisvar í viku í tímum tæpa 2 tíma í senn og segir sjálf að henni finnist það passlegt. Hún vorkennir Kolla að vera alla daga vikunnar í einhverju á meðan Kollu finnst verst að hafa ekki pláss fyrir meira :-) Svona eru þær ólíkar skvísurnar.
Jæja best að fara upp og vekja Matta
