Gyða Ásmundsdóttir
Helgarfrí
Búið að vera mikið um að vera bæði í vinnunni sem og einkalífinu. Tíu ára brúðkaupsafmæli á föstudaginn, ótrúlegt alveg að það séu komin tíu ár síðan við Matti giftum okkur!!  Mér finnst stutt síðan en samt svo langt líka.  Fyrir tíu árum síðan voru Kolla og Inga María ekki einu sinni til, get ekki ímyndað mér lífið án þeirra svo það er skrítin tilhugsun.  Þeim finnst líka doldið fúlt að við skildum hafa gift okkur án þeirra og þar með auðvitað skilið þær útundan, hvernig er hægt að túlka málið öðru vísi hmmm!
Svo var fyrsti dagurinn hennar Áróru í MR.  Þessar breytingar eru auðvitað rosalega spennandi en jafnframt erfiðar.  Það er alltaf erfitt að koma nýr inn í hóp og þekkja engan.  Hún segist ekki hafa talað við neinn en hefur samt frá þó nokkrum samtölum að segja, mótsögn hmm greinilega ekki þegar maður er fullur af unglingaveiki þá er lífið ein stór mótsögn :-)  EN við vonum bara innilega að hún eignist góða vini í MR.
Menningarnóttin í gær var rosalega fín þrátt fyrir rigningu og rok.  Við fórum í bæin um 11 leitið með strætó sem stelpunum finnst alltaf fjör.  Röltum svo um bæinn og sáum ýmislegt skemmtilegt.  Miðbæjarskólinn stóð samt upp úr hjá stelpunum.  Einfaldir hlutir í raun en einfaldleikinn er oft bestur þegar hann er vel gerður.  Þar skoðuðum við gamla skólastofu og leikstofu, settumst í söguhornið þar sem börnunum voru sagðar sögur af mjög góðum sögumanni.  Sögustundin þarna var það sem Inga María valdi að hefði staðið upp úr eftir daginn.  Eftir tvær sögur röltum við áfram um húsið og fengum okkur mjólk og súkkulaði köku og bjuggum til origani með hjálp starfsmanns.  Sá starfsmaður kemur víst reglulega í Frissa fríska og gerir origani með börnunum þar og þekktu stelpurnar hann því og það var gaman að sjá að hann þekkti þær líka þó hann vinni við að fara á milli frístundaheimila að kenna origani og hitti því örugglega mörg börn.
Eftir miðbæjarskólan fórum við á tónleika í fríkirkjunni sem voru mjög skemmtilegir og þaðan út að borða á La prima vera með foreldrum Matta, systkynum og fjölskyldu.  Eftir Matin voru það tónlistin sem réði ríkjum sáum Hjálmana, Fræflana og Geirfuglana.  Áróra gafst þó upp fljótlega eftir matin enda búin að vera hölt allan dagin vonandi er hún betri í fætinum í dag annars þurfum við að kíkja á slysó.  Að lokum var það svo auðvitað flugeldasýningin sem stendur alltaf fyrir sínu.  Fórum heim glöð en ánægð eftir góðan dag.
Vöknuðum svo eld snemma til að horfa á Ísland - Frakkland, fúlt að tapa leiknum með svona miklum mun en gaman að sjá strákana taka á móti silfrinu.
Sumarfrí og klipping
Ég byrjaði í sumarfríi á mánudag og er búin að liggja í leti síðan.  Virkilega notalegt að vera í fríi en ég þarf kannski að fara að gera eitthvað annað en liggja og lesa eða eitthvað álíka gáfulegt!  En það er bara svo notalegt.  Matti byrjar svo í fríi um næstu helgi.
EItt af því sem ég ætlaði að gera í fríinu var að fara í klippingu með allt liðið.  Áróra fékk fyrsta tíman í gær, stelpurnar eiga tíma í dag og ég svo á morgun.  Verðum allar hrikalega sætar um helgina :-)  Áróra lét breyta lúkkinu sínu svona í tilefni þess að hún er orðin menntskælingur.  Hún ætlaði að fá sér topp líka en hárgreiðslukonan mælti ekki með því nema hún nennti að slétta toppinn á hverjum morgni.  Sé ekki alveg Áróru í því hlutverki á morgnanna svo hún sleppti því að setja topp.  En hún lét setja styttur í hárið og hér kemur mynd af henni með nýju klippinguna!  Reyndar sléttaði konan líka á henni hárið þar sem hún sagði betra að klippa styttur í slétt hár því þá sér maður betur hvernig þær liggja eða eitthvað slíkt.
Stór vika hjá Áróru
Þetta var skásta myndin sem ég fann á flickr síðunni minni af Áróru ég þarf greinilega að taka fleiri myndir af henni !
Á þriðjudaginn síðasta varð frumburðurinn minn 16 ára, ótrúlegt alveg hvað tíminn flýgur!  Við fórum út að borða og Áróra vildi susí svo við fórum á fiskmarkaðinn þar sem að sá staður bíður upp á súsí og margt annað ætilegt fyrir okkur hin sem viljum ekki súsí.  Vorum öll mjög ánægð með þennan stað.
Síðan á miðvikudag útskrifaðist stúlkan úr grunnskóla.  Það var voðalega fín útskriftarathöfn með atriðum frá nemendum.  Dans, söngur og fiðluleikur mjög flott allt saman.
Áróra fékk verðlaun fyrir að vera hæðst í sínum skóla í samræmduprófinu í ensku.  :-)
Í dag er svo afmælisveislan hennar eftir þrjá tíma fyllist hér allt af ættingjum.  Við Áróra þrifum húsið í gær svo nú erum við að vinna í að klára veitingarnar (þ.e. þegar ég er ekki í tölvunni!!)
Videó af sýningunni og foreldrafótboltanum
Jæja hér er ég búin að setja saman mynd af sýningunni hennar Ingu Maríu frá því í gær.
<object width="425" height="350"> <param name="movie" value="http://www.youtube.com/v/rqCEq7hJitw"> </param> <embed src="http://www.youtube.com/v/rqCEq7hJitw" type="application/x-shockwave-flash" width="425" height="350"> </embed> </object>
Síðan skellti ég inn mynd af foreldraboltanum sem ég tók í dag.  Matti og Kolla voru að spila (í sitt hvoru liðinu auðvitað) en Ingu Maríu lið horfði á.
Hér er svo önnur mynd þar sem Katja er í færi og Matti og Kolla eru að hlaupa á eftir.
Strembinn dagur og nótt í ÍR heimilinu
Það var nóg um að vera á þessu heimili í gær.  Það voru stigapróf í balettnum hjá Kollu, sýning í fimleikunum hjá Ingu Maríu og síðan gisting í ÍR heimilinu með fótboltanum.
Dagurinn sem sagt byrjaði af fullum krafti klukkan 10 þegar við þurftum að hafa okkur til fyrir daginn og allir að vera komnir út svona 20 mín í 11.
Matti fór með Kollu í stigaprófið.  Hún er að taka próf til að mega fara upp í 1.stig í balettnum.  Hún hefur síðustu þrjú ár verið í því sem kallast forskóli en er nú komin upp í að þurfa að taka próf á milli ára til að meta hvort hún haldi áfram eða þurfi að æfa sig betur á því stigi sem hún er í.  Við höfum aldrei áður farið í svona en þær gerðu víst allar æfingar saman að fyrirmælum kennarans síns en skólastjórin horfði á og var eflaust að meta þær.  Spurning hvort að þær fái einkun eða bara staðist/fallið!  Kemur í ljós.
Ég og Inga María fórum í smáralind á sama tíma og Kolla og Matti fóru í balettinn.  Okkur vantaði að kaupa andlitsmálningu til að teikna blóm framan í Ingu Maríu fyrir sýninguna.  Það er búið að loka dótabúðinni í smáralindinni og við fundum ekki andlitsliti í Hagkaup og starfsfólkið vissi ekki um það ef það væri til.  Ég nennti nú ekki að fara út úr smáralind að finna aðra búð svo við keyptum gulan augnskugga í Apótekinu til að redda okkur.  Við fórum svo inn á klósett í smáralindinni og ég notaði svartan eyeliner til að teikna útlínurnar, bláan eyeliner og gula augnskuggan til að fylla upp í blöðin á blóminu.  Aðalgallinn var að guli liturinn var voða fljótur að mást af miðað við hitt sem er ennþá á henni rúmum sólahring seinna!
Við Inga María drifum okkur svo upp í Gerplu þar sem Inga María átti að vera tilbúin í fötum klukkan 12.  Við fórum inn í búningsherbergi og Inga María skipti um föt og hljóp glöð og kát að leika við fimleika vinkonur sínar.  Ég fór þá fram til að komast sem fyrst inn í salin þar sem það eru ekki merkt sæti á þessum sýningum og við vildum fá góð sæti.  Matti og Kolla komu á sama tíma og ég var búin að þessu þannig að við fórum saman inn og dreifðum okkur um heilan bekk svo að ömmur og afar kæmust líka fyrir.
Sýningin var mjög flott og Inga María stóð sig vel.  Ég tók vídeó sem ég er ekki búin að setja inn í tölvuna en skal setja það á youtube ef það er ekki of dökkt.
Eftir sýninguna slökuðum við á heima í svona tvo tíma en svo þurftum við að undirbúa gistingu í ÍR heimilinu.  Við Matti fundum til svefnpoka og dýnur út í bílskúr og svo fórum við stelpurnar og versluðum nammi og morgunmat.
Við vorum mættar í ÍR heimilið klukkan 6.  Þar var byrjað á að koma sér fyrir, blása upp dýnur og gera svefnpokana tilbúna og slíkt.  Stelpurnar voru allar mjög spenntar yfir þessu og óróinn í salnum í takt við það!  Við pöntuðum pitsur um hálf 7 en var klukkutímabið sem var svo sem allt í lagi.
Ein af mömmunum (vorum fjórar sem gistum með þeim) fór með stelpurnar í spurningakeppni.  6. flokkur á móti 7. flokk og síðan í agúrkustút (hey við áttum enga flösku!).
Síðan voru pitsurnar borðaðar með bestu lyst og eftir matin fóru tvær mömmur með þá sem það vildu í kvöldgöngu en ég og ein önnur vorum eftir með þeim sem ekki vildu fara í göngu.
Við spiluðum og sumar fóru út á fótboltavöll að leika sér.  Klukkan níu byrjaði svo mynd í sjónvarpinu sem þær fengu að horfa á í staðin fyrir spóluna því við fengum dvd tækið ekki til að virka.
Stelpurnar komu svo voðalega kátar úr kvöldgöngunni þær höfðu m.a. séð kanínur niðri í Elliðarárdal og þær voru það gæfar að Linda (bekkjarsystir og góð vinkona Ingu Maríu) gat haldið á einni og hinar stelpurnar klappað kanínunni.
Stelpurnar léku sér svo mjög vel saman allt kvöldið, sumar horfðu á myndina, sumar spiluðu, sumar léku fótbolta út á velli og sumar ærsluðust um.  En mér fannst áberandi að ég gat aldrei séð að neinn væri útundan heldur voru alltaf nokkrar saman að leika sér við eitthvað.
Rétt rúmlega 10 byrjuðum við að láta stelpurnar gera sig tilbúnar fyrir rúmið.  Bíómyndin var samt ekki búin fyrr en um korter í 11 og í endin held ég að næstum allar stelpurnar hafi verið farnar að horfa á myndina þegar þær uppgötvuðu að það var afsökun fyrir að vera ekki rekin ofan í svefnpoka.
Rúmlega 11 voru samt allar komnar ofan í svefnpoka og ein mamman las tvær sögur, hún las alveg rúman hálftíma.  Lesturinn hjálpaði mikið til að róa stelpurnar en sumar áttu samt erfitt með að sofna þrátt fyrir langan lestur.
Okkur mömmunum fannst samt áberandi að eldri stelpurnar voru samt verri með það en efluast eru þær bara vanari að vaka lengur, þessar yngri voru orðnar alveg útkeyrðar svona seint.   EIn stelpan (stór ekki ein af litlu) fékk mikla heimþrá og eftir nokkuð langan grátur fór hún heim frekar en að gista.
Ég get nú ekki sagt að ég hafi sofið mikið um nóttina.  Okkar dýnur voru nálægt stórum glugga sem er ekki með neinum gluggatjöldum og hinir gluggarnir eru bara með þunnum gluggatjöldum svo það var alveg bjart hjá okkur alla nóttina.  Síðan lak dýnan mín svo um tvö leitið þá gafst ég upp og skreið upp á dýnuna til Kollu.  Ég dottaði í 1-2 tíma í einu en svaf nú ekki í lengri dúrum en það með birtuna og 27 stelpum + fjórum mömmum að hreyfa sig.
Stelpurnar fóru flestar á fætur um 8 sem ég held að sé bara nokkuð vel sloppið.  Þær léku sér, fengu sér morgunmatinn sinn og léku sér svo meira
Um hálf 10 létum við þær fara að pakka saman dótinu sínu.  Þær þurftu nú tölverða hjálp enda áttum við svo sem ekki von á öðru en þar sem þetta átti hvort sem var að vera æfing fyrir keppnisferðina í sumar þá fannst okkur ágætt að þær æfðu sig í að pakka saman hlutunum sínum, tæma dýnurnar og pakka saman svefnpokum.  Ég hef nú samt ekki tölu á hve mörgum svefnpokum ég tróð í poka!
Eftir þetta fóru stelpurnar á æfingu og við þrifum.  Held að félagsheimilið hafi verið töluvert hreinna þegar við fórum en þegar við komum :-)
Klukkan hálf 11 byrjaði æfing með foreldrum en ég held ég hafi sjálf nú ekki verið komin út fyrr en um 11 eftir þrifin.  Matti og fullt af pöbbum og nokkrar mömmur spiluðu við stelpurnar á tveimur völlum.  Þegar líða tók á var nú nokkrum mömmu ýtt út á völlin eftir því sem pabbarnir urðu þreyttari og vildu skipta út foreldrum.  Stelpunum var skipt í þrjú lið og hvert lið spilaði tvisvar við sitt hvort foreldra liðið og hvíldi svo einn leik.  Ég held ég hafi aldrei séð fullorðna karlmenn klúðra jafnmikið af dauðafærum :-)  Svo var mjög kómískt að sjá liðið stoppa að spila meðan andstæðingarnir (foreldrarnir) reymuðu skóna fyrir andstæðinga sýna!
Í lokun var svo foreldrunum skipt í tvö lið og spiluðu á móti hvort öðru með doldið meiri hörku en hafði veri fram að því og fólk hætti alveg að klúðra dauðafærunum!  Eftir að búið var að spila í dáldin tíma var jafnt og ákveðið að næsta mark yrði þá sigurmark og því miður voru það andstæðingar Matta sem skorðu næsta mark en hann stóð sig samt vel.
Púff þetta var löng færsla enda búin að vera löng helgi hrikalega notalegt að vera lögst í sófan með ferðatölvuna.  Mikið væri gott að eiga auka dag en ekki að eiga að mæta í vinnu á morgun!  En jæja maður verður víst að mæta í vinnu enda stendur til að taka til í geymslunni!  Jibbí get ekki beðið!!
komnar einkunnir úr samræmdu prófunum
Jæja Áróra er komin með einkunnir úr samræmduprófunum og hún stóð sig bara vel.
Einkunnirnar eru:
Íslenska         8,5     raðeinkun 92
Enska            9,0     raðeinkun 99
Danska          8,5     raðeinkun 96
Náttúrufræði   7,0    raðeinkun 86
Stærðfræði     7,0    raðeinkun 63
Meðaleinkunin hennar er því 8 sem hún vonar að sé það sem til þarf til að komast inn á fornmálabraut MR.
Inga María fimleikakeppni
Inga María tók þátt í sinni fyrstu fimleikakeppni á föstudaginn var.  Þetta var innanfélagsmót hjá Gerplu fyrir krakka sem aldrei hafa tekið þátt í móti áður.
Fyrirkomulagið var þannig að keppendur fengu gefna 1-3 broskarla fyrir hverja æfingu eftir því hve vel til tókst.  Í lokin fengu svo allir verðlaun en hver og einn fékk verðlaun fyrir þá æfingu sem hann stóð sig best í.  Inga María fékk verðlaun fyrir gólfæfinguna.
Eftir keppnina kom konan sem var kynnirinn (við vitum ekki hvaða titil hún ber hjá Gerplu) og sagði okkur að Inga María mætti alls ekki hætta í fimleikum hún hefði mikla náttúrulega hæfileika í fimleikum.  Ekki slæmt að fá svona hrós :-)
Hér er myndband með keppninni.
<object width="425" height="350"> <param name="movie" value="http://www.youtube.com/v/Bj0bZgoVRkY"> </param> <embed src="http://www.youtube.com/v/Bj0bZgoVRkY" type="application/x-shockwave-flash" width="425" height="350"> </embed> </object>
Balletsýning Kollu
Á þriðjudaginn var komið að stóru stund vetrarins hjá henni Kollu.  Vorsýning Klassíska listdansskólans þar sem kolla er að æfa í þriðja flokki (þriðji veturinn hennar í forskólanum).  Þetta var í fyrsta sinn sem hópnum hennar er treyst fyrir að vera einar á sviðinu þ.e. engin kennari með þeim og voru þær mjög stoltar af því.
Kolla stóð sig auðvitað mjög vel svo og hópurinn allur.  Þetta eru reyndar alltaf alveg rosalega skemmtilegar sýningar hjá Klassíska listdansskólanum.  Byrjar á verki þar sem blandað er saman eldri krökkunum sem eru virkilega hæfileikaríkir dansarar og búnir að æfa balett lengi og síðan litlu krökkunum sem eru að byrja.  Eftir fyrsta hlé tekur svo við verk þar sem aðeins þeir sem lengra eru komnir sýna.
Hér er svo videó af Kollu sem ég tók á sýningunni.  Þetta eru nú ekkert mjög góð myndgæði en besta sem hægt er að gera í svona sal (þ.e. fyrir utan upptökuna sem skólin gerir á alvöru kvikmyndavél).  Ég byrjaði á að taka mynd af röngum enda sviðsins þar sem ég vissi ekki hvoru megin Kolla kæmi inn.  En hún er svo nr tvö að koma inn á sviðið þegar ég sný myndavélinni til hægri í byrjun, svona til að koma augunum ykkar á réttan stað :-)
<object width="425" height="350"> <param name="movie" value="http://www.youtube.com/v/FW50EEHIAzQ"> </param> <embed src="http://www.youtube.com/v/FW50EEHIAzQ" type="application/x-shockwave-flash" width="425" height="350"> </embed> </object>
Sunnudagur
Jæja þá erum við búin að halda vantrúarhitting eftir allt of langt hlé á slíkum hádegishittingum.
Ég fór á fætur rétt rúmlega 8 og tók til og slakaði á og ryksugaði og skúraði.  Kolla og Inga María tóku til í sínu herbergi og gengu frá dótinu sínu úr stofunni.  Inga María tuðaði og tuðaði allan tíman.  Henni fannst hún gera svo mikið meira en við hin.  Samt var hún sú eina sem sat og tuðaði meðan við hin vorum að þrífa/taka til/elda!!  Það er stundum doldið erfitt að vera hún.  Alveg þar til hún fékk það verkefni að þrífa glerborðið inn í stofunni.  Henni finnst gaman að pússa með rúðuúðanum svo hún gat dundað sér við það og hætt að tuða í bili.
Síðan kom fólkið og við nutum þess að spjalla saman og borða eggjaköku, pitsu og brauð sem Matti var búin að elda ofan í hópin.  Alltaf gaman að hitta þennan skemmtilega hóp.  Verst að borðstofuborðið er eiginlega hætt að rýma okkur.  En samt finnst mér svo leiðinlegt að dreifa fólkinu um húsið sem við gætum samt alveg gert annað borðstofuborð inn í stofu.  En hluti af hittingnum er að spjalla öll saman svo það er ekki eins ef komið í litla hópa út um allt.
Svona af því að ég er búin að læra að setja inn myndir í bloggið þá verð ég auðvitað að hafa myndir í hverri færslu er það ekki :-)
Svona liggja stelpurnar akkurat núna og horfa á teiknimynd, þreyttar eftir tiltekt morgunsins og spjallið við fólkið.
Hjólagarpar
Þá eru það myndböndin :-)
Við tókum hjálpardekkin af hjólinu hennar Ingu Maríu 1. maí og síðan hefur hún eiginlega ekki stoppað að hjóla.  Ég tók þetta myndband áðan svo þið gætuð séð hvað hún er orðin klár að hjóla.
<object width="425" height="350"> <param name="movie" value="http://www.youtube.com/v/XvkZJ43boB0"> </param> <embed src="http://www.youtube.com/v/XvkZJ43boB0" type="application/x-shockwave-flash" width="425" height="350"> </embed> </object>
Síðan setti ég líka inn myndband af Kollu að hjóla.  Hennar hjálpardekk fóru nú af síðasta sumar en hún er líka voðalega duglegur hjólagarpur svo þið verðið að fá að sjá hana sína listir sínar líka :-)
<object width="425" height="350"> <param name="movie" value="http://www.youtube.com/v/vmTvOwPU7j0"> </param> <embed src="http://www.youtube.com/v/vmTvOwPU7j0" type="application/x-shockwave-flash" width="425" height="350"> </embed> </object>
Göngutúr í heiðmörk
Matti var að kenna mér að setja inn myndir á bloggið mitt á einfaldan hátt svo nú dæli ég myndum á þetta blogg :-)
Á sunnudaginn vorum við Matti rosalega dugleg að vinna í garðinum.  Matti klippti trén og ég hreinsaði beð og tíndi upp greinar.
Eftir á fórum ég og mamma og stelpurnar upp í heiðmörk í göngutúr í góða veðrinu.  Það verður nú að segjast eins og er að það var pínu kalt meira að segja snjóhaugar á köflum en var samt rosa góður göngutúr.  Hér eru Áróra og Kolla í nestinu:
Hér er síðan mynd af Ingu Maríu og mömmu að borða nestið sitt.
Vikan
Ég fór á æfingatækið mitt tvisvar í þessari viku er ég ekki dugleg :-)  Hef ekki getað hugsað mér að vakna fyrr en ég geri á morgnanna meðan vinnutörnin gekk yfir en nú hef ég ekki þá afsökun svo ég dreif mig á fætur hálf 7 þriðjudag og fimmtudag.  Annars er sólin að vekja mig milli 6 og hálf sjö þessa dagana.  En það er í lagi meðan það er ekki fyrr!
Annars man ég ekki eftir meiru sem gerðist í vikunni ætlaði að skrifa skýrslu um það hvað við hefðum gert en svo kemur ekkert upp í kollinn.  Ahh jú fyrsta grill sumarsins var í gær.  Hrikalega gott að fá grillaðar kartöflur, maiís og kjöt namm namm.
Laugardagur
Ligg hér í sófanum með stelpunum að bíða eftir að Crazy frog myndmandið komi á youtupe.  Kollu langar mikið að skoða þetta myndband sem vinir hennar segja að sé svo flott en þau geta ekki haft hljóð á tölvunum í skólanum.  Það er sem sagt til fullt af Crazy frog myndböndum á you tupe að ég skildi hafa misst af þessu hingað til!!
<object width="425" height="355"><param name="movie" value="http://www.youtube.com/v/Ydmjzc20esI&hl=en"></param><param name="wmode" value="transparent"></param><embed src="http://www.youtube.com/v/Ydmjzc20esI&hl=en" type="application/x-shockwave-flash" wmode="transparent" width="425" height="355"></embed></object>
Ég var nú að viðurkenna að mér finnst James Blunt myndbönin skemmtilegri sem ég var að horfa á rétt áðan og hann er á leið til íslands jibíí
<object width="425" height="355"><param name="movie" value="http://www.youtube.com/v/Z9f0ZzVap-M&hl=en"></param><param name="wmode" value="transparent"></param><embed src="http://www.youtube.com/v/Z9f0ZzVap-M&hl=en" type="application/x-shockwave-flash" wmode="transparent" width="425" height="355"></embed></object>
Helgarfrí
Vinnutörnin er að ljúka á reyndar fullt af verkefnum en get sem betur fer farið að minnka yfirvinnuna.
Við Kolla fórum í vörtumeðferð í dag ég var að mæta í síðasta sinn þ.e. sjálf mun örugglega mæta með Kollu.  Vartan hennar Kollu stækkar bara og stækkar en læknirinn og sjúkraliðin reyna að fullvissa okkur um að svona sé þetta stundum og svo allt í einu bara virki þetta og vartan fari.  Læknirinn vill allavegana reyna allt að 10 svona meðferðir þ.e. frystispreyjið og eitthvað eitur sem er borið á áður en hann fer að hugsa um næstu meðferð sem er víst að sprauta krabbameinslyfi í vörtuna!  Hljómar ekki vel en meðferðin sem við erum í er ekki góð og þetta var sjötta meðferðin hennar Kollu í dag (sjöunda mín!).  Kolla greiið kveinar og kveinar meðan hann frystir vörtuna hennar en það er samt mikið betra eftir að Matti fór að koma líka var ansi erfitt að hafa engan til að halda í hendina á (við vorum á sitthvorum bekknum/stólnum).
Páskafrí
Ég er að lesa bók sem heitir Property sem ég fékk í jólagjöf (fyrirgefið man ekki alveg frá hverjum held samt að Stebbi og Margrét hafi gefið mér hana).  Ágætis afþreying en heillar mig samt ekkert rosalega allavegana tek ég pásur reglulega til að gera annað.
Stefni svo á að taka meira til á eftir og þrífa þetta hús sem er í rúst eftir vinnutörn eiginkonunnar á heimilinu.  Er sko búin að taka til í eina korters lotu, jebb ég mæli tíman enda er ég ekki að nenna þrifum og tiltekt núna og þá er ágætt að semja við sjálfan sig um bara korter í einu :-)