July 2008 Archives
Ég byrjaði í sumarfríi á mánudag og er búin að liggja í leti síðan. Virkilega notalegt að vera í fríi en ég þarf kannski að fara að gera eitthvað annað en liggja og lesa eða eitthvað álíka gáfulegt! En það er bara svo notalegt. Matti byrjar svo í fríi um næstu helgi.
EItt af því sem ég ætlaði að gera í fríinu var að fara í klippingu með allt liðið. Áróra fékk fyrsta tíman í gær, stelpurnar eiga tíma í dag og ég svo á morgun. Verðum allar hrikalega sætar um helgina :-) Áróra lét breyta lúkkinu sínu svona í tilefni þess að hún er orðin menntskælingur. Hún ætlaði að fá sér topp líka en hárgreiðslukonan mælti ekki með því nema hún nennti að slétta toppinn á hverjum morgni. Sé ekki alveg Áróru í því hlutverki á morgnanna svo hún sleppti því að setja topp. En hún lét setja styttur í hárið og hér kemur mynd af henni með nýju klippinguna! Reyndar sléttaði konan líka á henni hárið þar sem hún sagði betra að klippa styttur í slétt hár því þá sér maður betur hvernig þær liggja eða eitthvað slíkt.

