Stór vika hjá Áróru
Þetta var skásta myndin sem ég fann á flickr síðunni minni af Áróru ég þarf greinilega að taka fleiri myndir af henni !
Á þriðjudaginn síðasta varð frumburðurinn minn 16 ára, ótrúlegt alveg hvað tíminn flýgur! Við fórum út að borða og Áróra vildi susí svo við fórum á fiskmarkaðinn þar sem að sá staður bíður upp á súsí og margt annað ætilegt fyrir okkur hin sem viljum ekki súsí. Vorum öll mjög ánægð með þennan stað.
Síðan á miðvikudag útskrifaðist stúlkan úr grunnskóla. Það var voðalega fín útskriftarathöfn með atriðum frá nemendum. Dans, söngur og fiðluleikur mjög flott allt saman.
Áróra fékk verðlaun fyrir að vera hæðst í sínum skóla í samræmduprófinu í ensku. :-)
Í dag er svo afmælisveislan hennar eftir þrjá tíma fyllist hér allt af ættingjum. Við Áróra þrifum húsið í gær svo nú erum við að vinna í að klára veitingarnar (þ.e. þegar ég er ekki í tölvunni!!)


Leave a comment