June 2008 Archives

Kolla og Áróra í Heiðmörk

Þetta var skásta myndin sem ég fann á flickr síðunni minni af Áróru ég þarf greinilega að taka fleiri myndir af henni !

Á þriðjudaginn síðasta varð frumburðurinn minn 16 ára, ótrúlegt alveg hvað tíminn flýgur! Við fórum út að borða og Áróra vildi susí svo við fórum á fiskmarkaðinn þar sem að sá staður bíður upp á súsí og margt annað ætilegt fyrir okkur hin sem viljum ekki súsí. Vorum öll mjög ánægð með þennan stað.

Síðan á miðvikudag útskrifaðist stúlkan úr grunnskóla. Það var voðalega fín útskriftarathöfn með atriðum frá nemendum. Dans, söngur og fiðluleikur mjög flott allt saman.
Áróra fékk verðlaun fyrir að vera hæðst í sínum skóla í samræmduprófinu í ensku. :-)

Í dag er svo afmælisveislan hennar eftir þrjá tíma fyllist hér allt af ættingjum. Við Áróra þrifum húsið í gær svo nú erum við að vinna í að klára veitingarnar (þ.e. þegar ég er ekki í tölvunni!!)

Jæja hér er ég búin að setja saman mynd af sýningunni hennar Ingu Maríu frá því í gær.

Síðan skellti ég inn mynd af foreldraboltanum sem ég tók í dag. Matti og Kolla voru að spila (í sitt hvoru liðinu auðvitað) en Ingu Maríu lið horfði á.

foreldrabolti

Hér er svo önnur mynd þar sem Katja er í færi og Matti og Kolla eru að hlaupa á eftir.

Foreldrafótbolti frh

Það var nóg um að vera á þessu heimili í gær. Það voru stigapróf í balettnum hjá Kollu, sýning í fimleikunum hjá Ingu Maríu og síðan gisting í ÍR heimilinu með fótboltanum.
Dagurinn sem sagt byrjaði af fullum krafti klukkan 10 þegar við þurftum að hafa okkur til fyrir daginn og allir að vera komnir út svona 20 mín í 11.

Matti fór með Kollu í stigaprófið. Hún er að taka próf til að mega fara upp í 1.stig í balettnum. Hún hefur síðustu þrjú ár verið í því sem kallast forskóli en er nú komin upp í að þurfa að taka próf á milli ára til að meta hvort hún haldi áfram eða þurfi að æfa sig betur á því stigi sem hún er í. Við höfum aldrei áður farið í svona en þær gerðu víst allar æfingar saman að fyrirmælum kennarans síns en skólastjórin horfði á og var eflaust að meta þær. Spurning hvort að þær fái einkun eða bara staðist/fallið! Kemur í ljós.

Ég og Inga María fórum í smáralind á sama tíma og Kolla og Matti fóru í balettinn. Okkur vantaði að kaupa andlitsmálningu til að teikna blóm framan í Ingu Maríu fyrir sýninguna. Það er búið að loka dótabúðinni í smáralindinni og við fundum ekki andlitsliti í Hagkaup og starfsfólkið vissi ekki um það ef það væri til. Ég nennti nú ekki að fara út úr smáralind að finna aðra búð svo við keyptum gulan augnskugga í Apótekinu til að redda okkur. Við fórum svo inn á klósett í smáralindinni og ég notaði svartan eyeliner til að teikna útlínurnar, bláan eyeliner og gula augnskuggan til að fylla upp í blöðin á blóminu. Aðalgallinn var að guli liturinn var voða fljótur að mást af miðað við hitt sem er ennþá á henni rúmum sólahring seinna!

Við Inga María drifum okkur svo upp í Gerplu þar sem Inga María átti að vera tilbúin í fötum klukkan 12. Við fórum inn í búningsherbergi og Inga María skipti um föt og hljóp glöð og kát að leika við fimleika vinkonur sínar. Ég fór þá fram til að komast sem fyrst inn í salin þar sem það eru ekki merkt sæti á þessum sýningum og við vildum fá góð sæti. Matti og Kolla komu á sama tíma og ég var búin að þessu þannig að við fórum saman inn og dreifðum okkur um heilan bekk svo að ömmur og afar kæmust líka fyrir.

Sýningin var mjög flott og Inga María stóð sig vel. Ég tók vídeó sem ég er ekki búin að setja inn í tölvuna en skal setja það á youtube ef það er ekki of dökkt.

Eftir sýninguna slökuðum við á heima í svona tvo tíma en svo þurftum við að undirbúa gistingu í ÍR heimilinu. Við Matti fundum til svefnpoka og dýnur út í bílskúr og svo fórum við stelpurnar og versluðum nammi og morgunmat.

Við vorum mættar í ÍR heimilið klukkan 6. Þar var byrjað á að koma sér fyrir, blása upp dýnur og gera svefnpokana tilbúna og slíkt. Stelpurnar voru allar mjög spenntar yfir þessu og óróinn í salnum í takt við það! Við pöntuðum pitsur um hálf 7 en var klukkutímabið sem var svo sem allt í lagi.
Ein af mömmunum (vorum fjórar sem gistum með þeim) fór með stelpurnar í spurningakeppni. 6. flokkur á móti 7. flokk og síðan í agúrkustút (hey við áttum enga flösku!). Síðan voru pitsurnar borðaðar með bestu lyst og eftir matin fóru tvær mömmur með þá sem það vildu í kvöldgöngu en ég og ein önnur vorum eftir með þeim sem ekki vildu fara í göngu.
Við spiluðum og sumar fóru út á fótboltavöll að leika sér. Klukkan níu byrjaði svo mynd í sjónvarpinu sem þær fengu að horfa á í staðin fyrir spóluna því við fengum dvd tækið ekki til að virka. Stelpurnar komu svo voðalega kátar úr kvöldgöngunni þær höfðu m.a. séð kanínur niðri í Elliðarárdal og þær voru það gæfar að Linda (bekkjarsystir og góð vinkona Ingu Maríu) gat haldið á einni og hinar stelpurnar klappað kanínunni. Stelpurnar léku sér svo mjög vel saman allt kvöldið, sumar horfðu á myndina, sumar spiluðu, sumar léku fótbolta út á velli og sumar ærsluðust um. En mér fannst áberandi að ég gat aldrei séð að neinn væri útundan heldur voru alltaf nokkrar saman að leika sér við eitthvað. Rétt rúmlega 10 byrjuðum við að láta stelpurnar gera sig tilbúnar fyrir rúmið. Bíómyndin var samt ekki búin fyrr en um korter í 11 og í endin held ég að næstum allar stelpurnar hafi verið farnar að horfa á myndina þegar þær uppgötvuðu að það var afsökun fyrir að vera ekki rekin ofan í svefnpoka. Rúmlega 11 voru samt allar komnar ofan í svefnpoka og ein mamman las tvær sögur, hún las alveg rúman hálftíma. Lesturinn hjálpaði mikið til að róa stelpurnar en sumar áttu samt erfitt með að sofna þrátt fyrir langan lestur.
Okkur mömmunum fannst samt áberandi að eldri stelpurnar voru samt verri með það en efluast eru þær bara vanari að vaka lengur, þessar yngri voru orðnar alveg útkeyrðar svona seint. EIn stelpan (stór ekki ein af litlu) fékk mikla heimþrá og eftir nokkuð langan grátur fór hún heim frekar en að gista.

Ég get nú ekki sagt að ég hafi sofið mikið um nóttina. Okkar dýnur voru nálægt stórum glugga sem er ekki með neinum gluggatjöldum og hinir gluggarnir eru bara með þunnum gluggatjöldum svo það var alveg bjart hjá okkur alla nóttina. Síðan lak dýnan mín svo um tvö leitið þá gafst ég upp og skreið upp á dýnuna til Kollu. Ég dottaði í 1-2 tíma í einu en svaf nú ekki í lengri dúrum en það með birtuna og 27 stelpum + fjórum mömmum að hreyfa sig.

Stelpurnar fóru flestar á fætur um 8 sem ég held að sé bara nokkuð vel sloppið. Þær léku sér, fengu sér morgunmatinn sinn og léku sér svo meira Um hálf 10 létum við þær fara að pakka saman dótinu sínu. Þær þurftu nú tölverða hjálp enda áttum við svo sem ekki von á öðru en þar sem þetta átti hvort sem var að vera æfing fyrir keppnisferðina í sumar þá fannst okkur ágætt að þær æfðu sig í að pakka saman hlutunum sínum, tæma dýnurnar og pakka saman svefnpokum. Ég hef nú samt ekki tölu á hve mörgum svefnpokum ég tróð í poka! Eftir þetta fóru stelpurnar á æfingu og við þrifum. Held að félagsheimilið hafi verið töluvert hreinna þegar við fórum en þegar við komum :-)

Klukkan hálf 11 byrjaði æfing með foreldrum en ég held ég hafi sjálf nú ekki verið komin út fyrr en um 11 eftir þrifin. Matti og fullt af pöbbum og nokkrar mömmur spiluðu við stelpurnar á tveimur völlum. Þegar líða tók á var nú nokkrum mömmu ýtt út á völlin eftir því sem pabbarnir urðu þreyttari og vildu skipta út foreldrum. Stelpunum var skipt í þrjú lið og hvert lið spilaði tvisvar við sitt hvort foreldra liðið og hvíldi svo einn leik. Ég held ég hafi aldrei séð fullorðna karlmenn klúðra jafnmikið af dauðafærum :-) Svo var mjög kómískt að sjá liðið stoppa að spila meðan andstæðingarnir (foreldrarnir) reymuðu skóna fyrir andstæðinga sýna! Í lokun var svo foreldrunum skipt í tvö lið og spiluðu á móti hvort öðru með doldið meiri hörku en hafði veri fram að því og fólk hætti alveg að klúðra dauðafærunum! Eftir að búið var að spila í dáldin tíma var jafnt og ákveðið að næsta mark yrði þá sigurmark og því miður voru það andstæðingar Matta sem skorðu næsta mark en hann stóð sig samt vel.

Púff þetta var löng færsla enda búin að vera löng helgi hrikalega notalegt að vera lögst í sófan með ferðatölvuna. Mikið væri gott að eiga auka dag en ekki að eiga að mæta í vinnu á morgun! En jæja maður verður víst að mæta í vinnu enda stendur til að taka til í geymslunni! Jibbí get ekki beðið!!

About this Archive

This page is an archive of entries from June 2008 listed from newest to oldest.

May 2008 is the previous archive.

July 2008 is the next archive.

Find recent content on the main index or look in the archives to find all content.

Powered by Movable Type 4.01