May 2008 Archives
Jæja Áróra er komin með einkunnir úr samræmduprófunum og hún stóð sig bara vel.
Einkunnirnar eru:
Íslenska 8,5 raðeinkun 92
Enska 9,0 raðeinkun 99
Danska 8,5 raðeinkun 96
Náttúrufræði 7,0 raðeinkun 86
Stærðfræði 7,0 raðeinkun 63
Meðaleinkunin hennar er því 8 sem hún vonar að sé það sem til þarf til að komast inn á fornmálabraut MR.
Inga María tók þátt í sinni fyrstu fimleikakeppni á föstudaginn var. Þetta var innanfélagsmót hjá Gerplu fyrir krakka sem aldrei hafa tekið þátt í móti áður.
Fyrirkomulagið var þannig að keppendur fengu gefna 1-3 broskarla fyrir hverja æfingu eftir því hve vel til tókst. Í lokin fengu svo allir verðlaun en hver og einn fékk verðlaun fyrir þá æfingu sem hann stóð sig best í. Inga María fékk verðlaun fyrir gólfæfinguna.
Eftir keppnina kom konan sem var kynnirinn (við vitum ekki hvaða titil hún ber hjá Gerplu) og sagði okkur að Inga María mætti alls ekki hætta í fimleikum hún hefði mikla náttúrulega hæfileika í fimleikum. Ekki slæmt að fá svona hrós :-)
Hér er myndband með keppninni.
Á þriðjudaginn var komið að stóru stund vetrarins hjá henni Kollu. Vorsýning Klassíska listdansskólans þar sem kolla er að æfa í þriðja flokki (þriðji veturinn hennar í forskólanum). Þetta var í fyrsta sinn sem hópnum hennar er treyst fyrir að vera einar á sviðinu þ.e. engin kennari með þeim og voru þær mjög stoltar af því.
Kolla stóð sig auðvitað mjög vel svo og hópurinn allur. Þetta eru reyndar alltaf alveg rosalega skemmtilegar sýningar hjá Klassíska listdansskólanum. Byrjar á verki þar sem blandað er saman eldri krökkunum sem eru virkilega hæfileikaríkir dansarar og búnir að æfa balett lengi og síðan litlu krökkunum sem eru að byrja. Eftir fyrsta hlé tekur svo við verk þar sem aðeins þeir sem lengra eru komnir sýna.
Hér er svo videó af Kollu sem ég tók á sýningunni. Þetta eru nú ekkert mjög góð myndgæði en besta sem hægt er að gera í svona sal (þ.e. fyrir utan upptökuna sem skólin gerir á alvöru kvikmyndavél). Ég byrjaði á að taka mynd af röngum enda sviðsins þar sem ég vissi ekki hvoru megin Kolla kæmi inn. En hún er svo nr tvö að koma inn á sviðið þegar ég sný myndavélinni til hægri í byrjun, svona til að koma augunum ykkar á réttan stað :-)
Jæja þá erum við búin að halda vantrúarhitting eftir allt of langt hlé á slíkum hádegishittingum.
Ég fór á fætur rétt rúmlega 8 og tók til og slakaði á og ryksugaði og skúraði. Kolla og Inga María tóku til í sínu herbergi og gengu frá dótinu sínu úr stofunni. Inga María tuðaði og tuðaði allan tíman. Henni fannst hún gera svo mikið meira en við hin. Samt var hún sú eina sem sat og tuðaði meðan við hin vorum að þrífa/taka til/elda!! Það er stundum doldið erfitt að vera hún. Alveg þar til hún fékk það verkefni að þrífa glerborðið inn í stofunni. Henni finnst gaman að pússa með rúðuúðanum svo hún gat dundað sér við það og hætt að tuða í bili.
Síðan kom fólkið og við nutum þess að spjalla saman og borða eggjaköku, pitsu og brauð sem Matti var búin að elda ofan í hópin. Alltaf gaman að hitta þennan skemmtilega hóp. Verst að borðstofuborðið er eiginlega hætt að rýma okkur. En samt finnst mér svo leiðinlegt að dreifa fólkinu um húsið sem við gætum samt alveg gert annað borðstofuborð inn í stofu. En hluti af hittingnum er að spjalla öll saman svo það er ekki eins ef komið í litla hópa út um allt.
Svona af því að ég er búin að læra að setja inn myndir í bloggið þá verð ég auðvitað að hafa myndir í hverri færslu er það ekki :-)
Svona liggja stelpurnar akkurat núna og horfa á teiknimynd, þreyttar eftir tiltekt morgunsins og spjallið við fólkið.
Þá eru það myndböndin :-)
Við tókum hjálpardekkin af hjólinu hennar Ingu Maríu 1. maí og síðan hefur hún eiginlega ekki stoppað að hjóla. Ég tók þetta myndband áðan svo þið gætuð séð hvað hún er orðin klár að hjóla.
Síðan setti ég líka inn myndband af Kollu að hjóla. Hennar hjálpardekk fóru nú af síðasta sumar en hún er líka voðalega duglegur hjólagarpur svo þið verðið að fá að sjá hana sína listir sínar líka :-)
Matti var að kenna mér að setja inn myndir á bloggið mitt á einfaldan hátt svo nú dæli ég myndum á þetta blogg :-)
Á sunnudaginn vorum við Matti rosalega dugleg að vinna í garðinum. Matti klippti trén og ég hreinsaði beð og tíndi upp greinar.
Eftir á fórum ég og mamma og stelpurnar upp í heiðmörk í göngutúr í góða veðrinu. Það verður nú að segjast eins og er að það var pínu kalt meira að segja snjóhaugar á köflum en var samt rosa góður göngutúr. Hér eru Áróra og Kolla í nestinu:

Hér er síðan mynd af Ingu Maríu og mömmu að borða nestið sitt.


