March 2008 Archives

Páskafrí

| | Comments (0)
Mikið er ég búin að bíða eftir þessu páskafrí eftir langa og strembna vinnutörn (sem reyndar er ekki lokið en ég er samt í fríi núna).  Virkilega notalegt að eyða morgninum liggjandi í sófanum annað hvort í tölvunni eða að lesa.

Ég er að lesa bók sem heitir Property sem ég fékk í jólagjöf (fyrirgefið man ekki alveg frá hverjum held samt að Stebbi og Margrét hafi gefið mér hana).  Ágætis afþreying en heillar mig samt ekkert rosalega allavegana tek ég pásur reglulega til að gera annað.

Stefni svo á að taka meira til á eftir og þrífa þetta hús sem er í rúst eftir vinnutörn eiginkonunnar á heimilinu.  Er sko búin að taka til í eina korters lotu, jebb ég mæli tíman enda er ég ekki að nenna þrifum og tiltekt núna og þá er ágætt að semja við sjálfan sig um bara korter í einu :-)

About this Archive

This page is an archive of entries from March 2008 listed from newest to oldest.

February 2008 is the previous archive.

April 2008 is the next archive.

Find recent content on the main index or look in the archives to find all content.

Powered by Movable Type 4.01