Veikindi búin í bili og Öskudagur
Svona af því að ég fékk koment frá Sirrý um það hvernig Inga maría hefði það þá er best að færa síðustu daga til bókunar :-)
Inga María var orðin með fáeinar kommur á sunnudagskvöldið en var samt í dekri hjá ömmu á mánudeginum svo henni slæi nú ekki niður enda nýbúin að vera með rúmlega 40 stiga hita! Hún fór svo í skólan á þriðjudag en fékk að vera inni svo ekkert klikkaði nú fyrir öskudaginn.
Á Öskudag fóru Kolla, Inga María, Áróra, Eva (vinkona Áróru) og bróðir Evu í kringluna saman að syngja í búðum. Áróra ætlaði nú alls ekki með þær þetta árið en samþykkti það með semingi ef amma hennar færi með. Á endanum ákvað Eva að koma líka og kvöldið áður bættist bróðir hennar við. Mamma skutlaði þeim þá bara í kringluna. Þær skemmtu sér vel að syngja í búðunum fyrir nammi en um rúmlega 11 var nammið búið (opnaði 10!) svo mamma sótti Kollu, Ingu Maríu og bróðirinn en unglingarnir vildu ekki yfirgefa kringluna! Barnapíurnar voru sem sagt stungnar af svo stelpurnar komu niður í vinnu til mín meðan amman fór í skólan (skutluðu fyrst bróðir Evu heim).
Kolla var voðalega hátt uppi eftir morguninn og vildi tala við alla og hlaupa um. Ekki eitthvað sem hentar vel á vinnustöðum. Var reyndar í lagi á barnaspítalanum (ég var þar þegar þær komu) þar sem allir eru meira stylltir inn á börn og umhverfið líka. En við fórum svo í mötuneytið þar sem hún hljóp um þar til ég skipaði henni að setjast þar sem fólk væri að slaka á í matatímanum sínum. Við fórum svo upp á skrifstofu og gekk erfiðlega að halda þeim inni á skrifstofunni minni en ekki hlaupandi um gangana! Vinnufélagi lánaði þeim litabók og púsl en dugði voðalega stutt. Annar vinnufélagi greip þær að trufla fund hjá mér og gaf þeim kex og djús fram í eldhúsi svo ég gæti klárað fundin! Mamma kom svo og sótti þær aftur um þrjú og skutlaði þeim heim til Áróru.
Á heimleið um kvöldið kom ég við á KFC sem ætti svo sem ekki að vera frásögum færandi en ég skrúfaði niður rúðuna til að panta og hún skrúfaðist skökk ég ýtti við rúðunni til að reyna að rétta hana við og þá datt hún niður og inn í hurðina sjálfa!! Þarna var ég í hríðarbyl með enga rúðu í glugganum og varð að gjöra svo vel að keyra þannig heim frá skeifunni og heim. Ég mæli ekki með því að fólk prufi að keyra með enga rúðu í byl það er doldið kalt! En bylurinn var hættur í kringum Mjóddina sem betur fer.
Við Matti endurstöfluðum bílskúrnum og eiginlega bókstaflega tróðum micrunni inn í bílskúrinn! Var svo sem ágætt ég er ekki viss um að micran hefði átt auðvelt með að komast á milli staða í snjónum í dag.

Upps bara fjör hjá þér. Sé bílskúrinn þinn fyrir mér eins og í ikea auglýsingu held alla vega að það hafi verið ikea þar sem´bíllinn er fyltur af dóti og bílnum svo droðið inn í draslið. Annars var ég að spá í að bjalla í þig klukkan 12 í dag og plata þig í mat en var viss um að þú hefðir engan tíma í svoleiðis vittleysu svo ég hætti við. Endilega láttu mig vita þegar þú ferð að hafa tíma í svona frábæra hugmynd.
kveðja Sirrý
ahhh fylla bílin ég vissi að við Matti klikkuðum á einhverju :-)
Já mér lýst vel á mat einhvern daginn. Hringdu bara þegar hentar þér það verður brjálað hér út apríl svo þýðir lítið að bíða eftir því :/
Úff erfiður dagur snúllan mín :)