Lekur og lekur

| | Comments (1)
Það rignir og rignir úti og lekur og lekur inn um gluggan!!! 

Eftir kvöldmat var byrjað að leka af krafti inn um gluggan í dótaherbergi stelpnanna.  Matti rauk þá út að ausa og við stelpurnar fórum í að tæma herbergið og þurka upp vatnið.  Þurftum að tæma bókahillurnar og losa þær og færa þar sem vatnið lekur undir hillurnar. 

Glugginn heldur engan veginn straumnum svo fljótlega fór vatnið aftur að streyma inn svo nú er Matti eiginlega bara fastur úti í að ausa frá glugganum og við stelpurnar að þurka upp aftur.  Búin að þurka upp eins mikið og ég get með tuskum og handklæðum en dæli nú með hárþurkunni á teppið í 5 mín og svo 10 mín pásu.  Ég þori eiginlega ekki að leggja meira á glænýju hárþurkuna mína!

Samkvæmt vedur.is á rigningin að fara að minnka á næsta klukkutímanum svo Matti getur þá kannski komið inn og slakað á í lengur en 5 mín í hvert sinn en akkurat núna þá má hann ekki vera lengur inni því gatið við gluggan fyllist hratt og vatnið dælist þá inn.

1 Comments

Kata said:

Þetta er rosalegt Gyða. Það hefur verið að leka inn í svefnherbergið hjá okkur en ekki svona svaðalega, þið eigið alla mína samúð.

Leave a comment

About this Entry

This page contains a single entry by Gyða Ásmundsdóttir published on February 8, 2008 8:59 PM.

Veikindi búin í bili og Öskudagur was the previous entry in this blog.

Vonandi er núna að stytta upp is the next entry in this blog.

Find recent content on the main index or look in the archives to find all content.

Powered by Movable Type 4.01