February 2008 Archives

Matti er búin að vera úti að ausa síðasta klukkutíman og ég að reyna að skipta um handklæði yfir í þurr handklæði innan frá.  Hef þrisvar misst stjórnina alveg á flaumnum þannig að ég stend bara og garga á Kollu meiri handklæði og hún hlaupur til mín með þurr og yfir í þvottahús með rennandi blaut handklæði og aftur og aftur til skiptis!, þannig blaut að það lekur stannslaust úr þeim blaut. 

Á meðan er Inga María með gólftuskur að reyna að þurka bleytuna úr teppinu og vinda á milli.  Þetta er sko ekta fjölskyldusamvinna. 

Akkurat núna liggja allir dauðþreyttir og flatir í sófanum að horfa á föstudagsmyndina.  Vonandi getum við setið kjurr í einhverjar mínútur!

Þvottavélin og þurkarinn á fullu að þvo og þurka fleiri handklæði svo við getum öll haldið áfram.

Lekur og lekur

| | Comments (1)
Það rignir og rignir úti og lekur og lekur inn um gluggan!!! 

Eftir kvöldmat var byrjað að leka af krafti inn um gluggan í dótaherbergi stelpnanna.  Matti rauk þá út að ausa og við stelpurnar fórum í að tæma herbergið og þurka upp vatnið.  Þurftum að tæma bókahillurnar og losa þær og færa þar sem vatnið lekur undir hillurnar. 

Glugginn heldur engan veginn straumnum svo fljótlega fór vatnið aftur að streyma inn svo nú er Matti eiginlega bara fastur úti í að ausa frá glugganum og við stelpurnar að þurka upp aftur.  Búin að þurka upp eins mikið og ég get með tuskum og handklæðum en dæli nú með hárþurkunni á teppið í 5 mín og svo 10 mín pásu.  Ég þori eiginlega ekki að leggja meira á glænýju hárþurkuna mína!

Samkvæmt vedur.is á rigningin að fara að minnka á næsta klukkutímanum svo Matti getur þá kannski komið inn og slakað á í lengur en 5 mín í hvert sinn en akkurat núna þá má hann ekki vera lengur inni því gatið við gluggan fyllist hratt og vatnið dælist þá inn.
Svona af því að ég fékk koment frá Sirrý um það hvernig Inga maría hefði það þá er best að færa síðustu daga til bókunar :-)

Inga María var orðin með fáeinar kommur á sunnudagskvöldið en var samt í dekri hjá ömmu á mánudeginum svo henni slæi nú ekki niður enda nýbúin að vera með rúmlega 40 stiga hita!  Hún fór svo í skólan á þriðjudag en fékk að vera inni svo ekkert klikkaði nú fyrir öskudaginn.

Á Öskudag fóru Kolla, Inga María, Áróra, Eva (vinkona Áróru) og bróðir Evu í kringluna saman að syngja í búðum.  Áróra ætlaði nú alls ekki með þær þetta árið en samþykkti það með semingi ef amma hennar færi með.  Á endanum ákvað Eva að koma líka og kvöldið áður bættist bróðir hennar við.  Mamma skutlaði þeim þá bara í kringluna.  Þær skemmtu sér vel að syngja í búðunum fyrir nammi en um rúmlega 11 var nammið búið (opnaði 10!) svo mamma sótti Kollu, Ingu Maríu og bróðirinn en unglingarnir vildu ekki yfirgefa kringluna!  Barnapíurnar voru sem sagt stungnar af svo stelpurnar komu niður í vinnu til mín meðan amman fór í skólan (skutluðu fyrst bróðir Evu heim).
Kolla var voðalega hátt uppi eftir morguninn og vildi tala við alla og hlaupa um.  Ekki eitthvað sem hentar vel á vinnustöðum.  Var reyndar í lagi á barnaspítalanum (ég var þar þegar þær komu) þar sem allir eru meira stylltir inn á börn og umhverfið líka.  En við fórum svo í mötuneytið þar sem hún hljóp um þar til ég skipaði henni að setjast þar sem fólk væri að slaka á í matatímanum sínum.  Við fórum svo upp á skrifstofu og gekk erfiðlega að halda þeim inni á skrifstofunni minni en ekki hlaupandi um gangana!  Vinnufélagi lánaði þeim litabók og púsl en dugði voðalega stutt.  Annar vinnufélagi greip þær að trufla fund hjá mér og gaf þeim kex og djús fram í eldhúsi svo ég gæti klárað fundin!  Mamma kom svo og sótti þær aftur um þrjú og skutlaði þeim heim til Áróru.

Á heimleið um kvöldið kom ég við á KFC sem ætti svo sem ekki að vera frásögum færandi en ég skrúfaði niður rúðuna til að panta og hún skrúfaðist skökk ég ýtti við rúðunni til að reyna að rétta hana við og þá datt hún niður og inn í hurðina sjálfa!!  Þarna var ég í hríðarbyl með enga rúðu í glugganum og varð að gjöra svo vel að keyra þannig heim frá skeifunni og heim.  Ég mæli ekki með því að fólk prufi að keyra með enga rúðu í byl það er doldið kalt!  En bylurinn var hættur í kringum Mjóddina sem betur fer. 
Við Matti endurstöfluðum bílskúrnum og eiginlega bókstaflega tróðum micrunni inn í bílskúrinn!  Var svo sem ágætt ég er ekki viss um að micran hefði átt auðvelt með að komast á milli staða í snjónum í dag.

Veikindi

| | Comments (1)
Það var hringt í mig frá skólanum um hádegi á föstudaginn og Inga María var þá komin með hita.  Ég sótti Ingu Maríu og fór með hana heim til mömmu sem ætlaði að passa hana þar til að pabbi kæmi snemma heim úr vinnu, þau voru á leið út með vinahópnum.  Þegar ég ætlaði út úr dyrunum hringdi pabbi og var að leggja af stað heim!  Ég skaust þá í vinnuna og sótti tölvuna og setti smá verkefni fyrir nýja fjármálaráðgjafiann sem ég hafði verið að kenna nýja starfið.  Greiið konan þurfti bara að bjarga sér sjálf eftir hádegi fyrsta daginn!

Ég gaf svo Ingu Maríu verkjalyf en hún kvartaði samt áfram í höfðinu svo við fórum á læknavaktina að kíkja á hana.  Læknirinn fann ekkert annað að henni en flensu svo við fórum heim með þau fyrirmæli að tvöfalda verkjalyfin.  Daginn eftir vaknaði hún svo með tæplega 40 stiga hita og svo minnkaði hitinn mikið og rauk svo aftur upp í yfir 40 stig um kvöldið! 

Hún hefur svo verið mikið hressari í dag og ekkert fengið neitt verkjalyf og var með 7 kommur áðan þegar ég mældi hana um 3 leitið.  Sjáum til hversu háan hita hún verður með í kvöld, vonandi er þetta að ganga yfir svo hún komist í búðir að syngja á miðvikudaginn!  Hún hefur sko mjög oft verið veik á öskudag allavegana síðustu tvo öskudaga og jafnvel fleiri!

Annars er ég bara að vinna og vinna mætti í vinnuna bæði laugardag og sunnudag.  Nýji fjármálaráðgjafinn byrjaði síðasta föstudag en auðvitað á ég eftir að kenna henni starfið en munar miklu að hún sé allavegana byrjuð. 

About this Archive

This page is an archive of entries from February 2008 listed from newest to oldest.

January 2008 is the previous archive.

March 2008 is the next archive.

Find recent content on the main index or look in the archives to find all content.

Powered by Movable Type 4.01