Vinna og útsölur
Það er mikið að gera í vinnunni og ég er að vinna fram eftir alla daga. Þökk sé ferðavél þá ætla ég ekki niður í vinnu um helgina heldur vinna hérna heima. Mun örugglega þurfa að vinna allar helgar fljótlega svo eins gott að njóta þess að vinna bara heima! Styttist í ársuppgjörið og í janúar er ég með tvö störf á bakinu, fjör hjá mér. Farin að telja niður dagana þar til nýji fjármálaráðgjafinn byrjar :-)
Við Áróra fórum í smáralind áðan og kíktum í útsöluna hjá Jane N eitthvað man ekki nafnið á búðinni en allavegana fílar Áróra fötin þar. Hún fékk að eyða 9 þús kr og fékk fyrir það 2 boli, eina hneppta peysu og eina prjónaða peysu. Allt á minnst 50% afslætti svo það var flott. Hún á þá að eiga nóg af efri pörtum í langan tíma en henni vantar aðrar buxur. Buxurnar sem henni langar í voru bara til í stærð 8 og ekki einu sinni Áróra gat hneppt þeim að sér, hún reyndar komst í þær en var þröngt að hneppa þeim. En sem sagt ef þið passið í stærð 8 þá var nóg til af þeim :-)
Annars keypti ég mér bol og blússu í Debenhams sem kostuðu samtals 2 þús svo peningnum var ekki alveg jafn skipt á okkur mæðgur í þessari verslunarferð!
jæja ég var víst búin að lofa að sjá um kvöldmatinn og klukkan orðin hálf sjö og ekkert til að elda! Best að drífa sig út í búð.

Ég stefni á að passa í föt úr þessari búð næstu jól mér finnst þau geðveik.
Já ég er sammála því en það var ekkert sem passaði á mig sem ég sá á útsölunni. Ég sá bara litlu númerin en var svo sem ekkert mikið að leita fyrir mig hvort sem var svo kannski leitaði ég ekki vel.
Það er aðalega upp í 14 en fá ör fáar flíkur í 16 en skilst að stærðirnar séu frekar litlar þannig af þú notar 14 venjulega þá sért að kaupa 16 þarna. En já margt flott ja eða næstum allt
Já, þetta er mjög flott búð en stærðirnar eru frekar litlar, ég nota einu númeri stærra þarna en venjulega.