Hringja bjöllu

| | Comments (2)
Inga María fékk að hringja bjöllunni í fimleikunum á mánudaginn var voða ánægð með sjálfan sig, eðlilega.  Sem sagt þegar einstaklingi tekst eitthvað vel í fyrsta sinn þá segir þjálfarinn að hann megi hringja bjöllunni.  Þá stoppar allur salurinn og klappar og svo halda allir áfram að æfa. Mér fannst þetta ferlega skondið fyrst þegar ég sá þetta.  Fullur risa stór salur af krökkum að æfa, bjallan hringir allir stoppa og klappa og halda svo áfram án þess í raun að vita né sjá fyrir hverju þeir eru að klappa :-)  En það er örugglega rosa gaman að fá að stoppa alla og fá klappið :-)

Það er nóg að gera í vinnunni, bara gaman að því. 

Það snjóar og snjóar en micran mín komst samt út úr bílastæðinu vonandi kemst hún aftur út á morgun! 

2 Comments

Sirrý said:

Kannski verið ögn verra að komast heim ?

Flott hjá Ingu Maríu örugglega rosalega gaman að allir klappi fyrir manni.

Eygló said:

Micran kemst sko hvað sem er ;)

Leave a comment

About this Entry

This page contains a single entry by Gyða Ásmundsdóttir published on January 16, 2008 9:45 PM.

Kaffi was the previous entry in this blog.

Find recent content on the main index or look in the archives to find all content.

Powered by Movable Type 4.01