Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir þau gömlu

| | Comments (0)
Þá er komið nýtt ár eina ferðina enn. 

Við áttum rosalega fínt kvöld hjá tengdaforeldrum mínum fengum mjög góðan mat og auðvitað góðan félagsskap.  Ég fékk að fá mér vínið og Matti keyrði, lúxus líf :-)  Hann reyndar kvartaði aðeins yfir því hvað ég sé léleg drykkjumanneskja svona þegar ég fæ tækifærið.
Dætur mínar eru nú ekki mikið fyrir flugelda og stóðu úti haldandi fyrir eyru og grenjuðu yfir að foreldrarnir hefðu ekki keypt hlífðargleraugu sem er svo sem alveg rétt hjá þeim en fórum ekkert að kaupa neina flugelda.  Æ ég hef nú aldrei verið neitt fyrir þessa flugelda heldur svo skil þær mjög vel. 

Matti var á leka vaktinni í nótt í rigningunni.  Þegar við komum heim var komið ansi mikið vatn við gluggan og stuttu seinna byrjaði glugginn að leka!  Matti dreif sig út að ausa vatninu úr og svo fylgdist hann með þessu fram eftir nóttu.  Veit satt að segja ekkert hvenær hann kom upp í en ég fór á fætur 10:30 og þá var allt í fínu lag með gluggan enda engin rigning.

Stelpurnar eru núna að spila keilu í wii eftir Tennis leik sem endaði í gráti því Ingu Maríu gekk svo illa og skammaði Kollu og sagði að það væri bannað að nota þrumuskot!!  Eins og þeim finnst wii skemtilegt þá enda leikirnir hjá Ingu Maríu voðalega oft með væli.  EN akkurat núna er fella eftir fellu og bara fagnaðaróp og give me five svo rosa fjör hér hjá okkur.

Leave a comment

About this Entry

This page contains a single entry by Gyða Ásmundsdóttir published on January 1, 2008 11:23 AM.

Fyrsta bloggið í langan tíma was the previous entry in this blog.

Fyrsti vinnudagurinn í nýju starfi is the next entry in this blog.

Find recent content on the main index or look in the archives to find all content.

Powered by Movable Type 4.01