Fyrsta vinnuvika ársins

| | Comments (0)
Jæja þá er fyrsta vinnuvika ársins búinn.  Ferlega gott að hún sé búin ég er uppgefin þó ég hafi reyndar afkastað mest litlu!  Fer ótrúlega mikill tími í að koma sér fyrir á nýjum stað, setja upp tölvuna og fá rétta aðganga osfrv. 

Maður er svo hrikalega þreyttur eftir að snúa sólahringnum við, byrja í nýju starfi og ekki er þetta þjófnaðarmál sem ætlar að verða sagan endalausa að hjálpa til með það.  Þannig að eiginlega kem ég bara heim á kvöldin og langar að fara beint í rúmið en svo eftir að börnin eru komin í rúmið þá liggur maður hálf sofandi og horfir á sjónvarpið fram eftir í stað þess að sofna snemma!

Stelpurnar fóru í fyrsta skóladaginn á nýju ári í dag.  Eru búnar að vera að dunda sér með Gunnu ömmu síðustu tvo daga.  Reyndar er Áróra heima líka svo við höfum bara farið í vinnuna og hún passar þær fyrst og amma hefur svo sótt þær.  Þetta er dekurlíf stelpunum að vera svona hjá ömmu farið í bíó í gær t.d. meðan við þurfum að vakna eldsnemma (ok reyndar ekki fyrr en átta en ég vakna venjulega korter í sjö) og fara í vinnu.


Leave a comment

About this Entry

This page contains a single entry by Gyða Ásmundsdóttir published on January 4, 2008 5:37 PM.

Fyrsti vinnudagurinn í nýju starfi was the previous entry in this blog.

Find recent content on the main index or look in the archives to find all content.

Powered by Movable Type 4.01