Ég á bíl sem virkar jibíí :-)

| | Comments (1)
Diddi var svo elskulegur að skipta um rafgeymir í bílnum mínum svo núna á ég loksins aftur bíl sem virkar.  Ég gat bara farið í vinnuna á undan liðinu að vísu sýndi ég Kollu fyrst rækilega á hvað stóri vísirinn bendir þegar klukkan er 10 mín yfir 8 og hún bar því ábyrgð á því að reka pabba sinn frá morgunverðaborðinu (sem sagt frá ferðavélinni og blöðunum) svo hann myndi keyra þær í skólan á réttum tíma!  Held að þetta plan okkar Kollu hafi bara virkað vel.  Það verður gott þegar sólin fer að koma upp fyrr og þær geta farið að labba í skólan aftur en ég vil ekki að þær labbi í þessu myrkri sem er núna.

Ég sótti svo bara stelpurnar og skutlaði þeim í mat til mömmu og pabba sem pössuðu þær meðan við fórum út að borða með vantrúarfélögum.  Það var gaman eins og venjulega enda erum við svo skemmtileg :-)  Komum svo bara heim rétt eftir miðnættið sem var bara passlegt finnst mér.

1 Comments

Sirrý said:

Það er gott að eiga góða að enginn spurning. Ég læt krakkana ekki ganga í skólan núna en ætla að gera það um leið og það fer að birta á þessum tíma.

Leave a comment

About this Entry

This page contains a single entry by Gyða Ásmundsdóttir published on January 12, 2008 11:12 AM.

innbrot eru ekki skemmtileg! was the previous entry in this blog.

Find recent content on the main index or look in the archives to find all content.

Powered by Movable Type 4.01