Afmælisveislan búin

| | Comments (5)
Jæja þá er þessi afmælisveisla búin og hálft ár í þá næstu á þessu heimili ahhh hvað það er notaleg tilhugsun :-)

Takk fyrir öll komentin voða gaman að fá koment á bloggið mitt!

Bekkurinn hennar Kollu og vinir komu klukkan 1 í dag og 23 börnum var boðið.  Við vorum nervus yfir að taka við hópnum bæði er hann ansi stór og svo voru þetta doldlir villingar í fyrra!!  Kolla vildi samt bjóða öllum svo það gerðum við enda hennar afmæli.  Afmælið gekk bara vel.  Það voru náttúrulega voðalega læti en samt ekkert mikið vesen í þeim.  Það reyndar voru "bara" ca 15 krakkar við borðið þegar við höfðum pizzuna og kökuna en einn krakki var farinn (var að fara í leikhús svo kíkti bara stutt) og tveir komu í lok afmælis.  Held að það hafi bæði munað miklu um að fjöldin var minni en í fyrra og svo hafa þau auðvitað þroskast heilmikið.

Klukkan 3 mættu svo ættingjarnir og vinirnir fóru.  Þrjár fjölskyldur afboðuðu sig svo það var nóg af veitingum það er á hreinu :-)  Þannig að við auðvitað átum og átum og síðustu gestir fóru rúmlega 7 og þá átum við fjölskyldan doldið meira og stelpurnar fóru í rúmið og ég fékk mér svo aðeins meira (hey það voru ennþá kökur eftir!!!).

Jæja ég ætla að skríða upp í rúm og halda áfram að lesa Svartfugl eftir Gunnar Gunnarsson.

5 Comments

Til hamingju með Kollu og bloggið. Gleðilegt ár og takk fyrir góða stund í París í sumar.

Eva Mjöll said:

Innilega til hamingju með stelpuna, verst að við gátum ekki komið.

Kata said:

Þetta hefur verið rosalega veisla hjá ykkur Gyða, varstu ekki búin á því eftir daginn? .Þegar þú talaðir um að bjóða öllum bekknum í pizzu og svona varð mér allt í einu hugsað til þegar við vorum litlar og þú varst yfirleitt sú eina allavega á yngri árum sem máttir bjóða öllum bekknum. Manstu þegar við fórum út í Kjalfell og keyptum 18 prins póló? Það voru góðir tímar :)

Sirrý said:

Þetta hefur verið allsherjar fjör hjá ykkur. Leiðinlegt að hafa mist af því og öllu góðgætinu.

Arnar er að spá í að hafa sitt afmæli á föstudaginn ég er ekki að nenna því en svona er það nú bara.

Gyða said:

Kristín, takk takk og líka takk fyrir góðar stundir í París.

Eva: takk takk þið voruð löglega afsökuð

Kata: he he ooo þú mannst svo margt skemmtilegt :-)

Sirrý: jebb rosa fjör hér. Þú skellir í eitt afmæli fyrir Arnar Leó getur þú ekki bara boðið bestu vinunum í pizzu og bíó eða eitthvað slíkt.

Leave a comment

About this Entry

This page contains a single entry by Gyða Ásmundsdóttir published on January 6, 2008 10:56 PM.

Fyrir átta árum was the previous entry in this blog.

innbrot eru ekki skemmtileg! is the next entry in this blog.

Find recent content on the main index or look in the archives to find all content.

Powered by Movable Type 4.01